Aðventuferð | Riga

Aðventuferð | Riga

Aðventuhátíðin í Riga er einstakur tími. Yfir jólahátíðina má finna tilkomumikil og fallega skreytt tré víðsvegar um borgina og er mikið lagt í að skreytingarnar séu eins fallegar og völ er á. Aðventan er frábær tími til að heimsækja þessa stórskemmtilegu borg, skreytingarnar og miðaldarlegur arkitektúrinn umbreyta henni í sannkallaða jólaparadís. 

Verð

  • Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 124.900kr.
  • Verð fyrir einstaklingsherbergi 143.900kr.

Hvað er innifalið?

Hvað er spennandi að gera?

Aðventuhátíðin í miðaldaborginni Riga er einstakur tími þar sem öllu er til tjaldað. Fyrsta skriflega heimildin um skreytingu jólatrés nær aftur til ársins 1510 og var það í borginni Riga og sökum þessa er oft talað um hana sem nokkurskonar höfuðborg jólatrjánna. Yfir jólahátíðina má finna tilkomumikil og fallega skreytt tré víðsvegar um borgina og er mikið lagt í að skreytingarnar séu eins fallegar og völ er á en nemar frá Listaháskóla Riga sjá um skreytingarnar. Aðventan er frábær tími til að heimsækja þessa stórskemmtilegu borg, skreytingarnar og miðaldarlegur arkitektúrinn umbreyta henni í sannkallaða jólaparadís. Ýmiskonar aðburðir í tengslum við aðventuna eru haldnir í borginni um hátíðirnar, fram koma listamenn og tónlistarfólk. Til dæmis eru árlega haldnir hátíðartónleikar 1. Desember í Dómkirkjunni og art hunt listasýning þar sem ungir lettneskir listamenn koma list sinni á framfæri.

Jólamarkaðirnir opna formlega fyrsta í aðventu 27. Nóvember og eru haldnir í gamla borgarhlutanum sem er á heimsminjaskrá UNESCO, fjölbreytni þessa markaða spilar stórt hlutverk í aðdráttarafli borgarinnar yfir hátíðirnar. Hægt er að upplifa mikið og spennandi úrval af mat, heitum og köldum drykkjum, skoða skemmtilegt handverk eins og til dæmis handunnar ullarvörur s.s. trefla, sokka, vettlinga og peysur svo eitthvað sé nefnt. Einnig er mikið af öðru handverki eins og munum úr tré eða þá skartgripum úr silfri og rafi.

Vert er að nefna að einn stærsti markaður Evrópu er staðsettur í Riga, Riga Central Market, en saga hans nær aftur til áranna 1924-1930 og er einnig á heimsminjaskrá UNESCO. Annar spennandi markaður er Kalnciema markaðurinn sem er þekktur fyrir allskonar vörur sem lettneskir listamenn og bændur hafa til sölu þar.

Upplýsingar um jólaborgina Riga

Hvert fer ég að versla?

Í gamla bænum er að finna skemmtilegar verslunargötur eins og Aspazijas, Brivibas,Terbatas og Kr. Barona. á sama svæði eru síðan smærri götur með margskonar verslunum. Við mælum með því að ferðalangar geri sér ferð í RIIJA við enda Terbatas götunnar til að finna áhugaverða minjagripi og vandað handverk.

Galerija Centrs er í 500m fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna H&M, Lindex, Massimo Dutti, Swarovski, Timberland og Tommy Hilfiger.

TC Spice er í 7km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna Adidas, Armani Exchange, Ecco, H&M, Hugo Boss, Lindex, Lloyd, Michael Kors, Max Mara Weekend, Nike og Zara.

Galleria Riga er í 1.3km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna COS, H&M, Lloyd, Mango, Body Shop og Watch|Wear. Útsýnið yfir borgina af efstu hæðinni er stórfenglegt og hægt að ganga hringinn til að sjá yfir alla borgina.

Riga Plaza er í 5km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna Levi's, Guess, Lindex, Flying Tiger Copenhagen, Ecco, Skechers, Swarovski, Pandora og Outlet Bazaar.

AKROPOLE Alfa er í 8.3km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna Accessorize, Bershka, Black Swan, Calvin Klein Underwear, ECCO, Gabi, Gerry Weber, Guess, H&M, Ivo Nikkolo, Lloyd, mango, Massimo Dutti, New Yorker, Nike, Skechers, Pull&Bear, Stradivarius, Vans, Top Shop og Zara.

Stockmann er í 1km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna Calvin Klein, Benetton, Desigual, Reebok, Nike, Burberry, Chanel, Elizabeth Arden, Giovanni, Dolce & Gabbana, Gucci, Jimmy Choo, Marc Jacobs, Lacoste, Yves Saint Laurent, Givenchy, Hermes, Versace, Prada, Chistian Dior, Armani, Ralph Lauren, Vero Moda, Vogue, Michael Kors, Steve Madden og Dr. Martens.

Domina er í 5.3km fjarlægð frá Dome torginu í gamla bænum. Hér má m.a. finna Guess, Lloyd, H&M, Lindex, Levi’s, United Colors of Benetton, Garmin, Top Shop, Inglot, The Body Shop, Bugatti, Crocs, Daniele Donati, House of Samsonite, Calzedonia og Mon Trésor.

Vissir þú að..

Riga hefur upp á margt að bjóða. Tónlistarhátíðir, þjóðlagatónlist og nútíma danstónlist skipa stóran sess í Riga þar sem borgin býður upp á lifandi og spennandi næturlíf. Opin svæði eru víða með fallegum görðum og vel hefur tekist að samræma náttúruna og byggðina í kring án þess að missa sjarmann sem einkennir borgina.

Riga Central Market er einn stærsti markaður Evrópu og er staðsettur í gömlum flugskýlum fyrir loftskip. Hér má finna allt frá matvöru til fatnaðar.

Alberta Iela er ein mesta gersemi Riga, á þessari götu er að finna ótrúlegt magn af byggingum sem tilheyra Art Nouveau stílnum en mikilfenglegur íburður og styttur einkenna stílinn. Sumar bygginganna eru einnig söfn og hægt er að skoða þær að innan.

Óperu og balletthöll Lettlands er staðsett í Riga og er húsnæðið sjálft afskaplega tilkomumikið. Húsið var byggt 1882 í neó-klassískum byggingarstíl og hefur hýst margar skærustu stjörnur þessara sviðslista, t.d. Mikhail Baryshnikov. Ferðalöngum stendur til boða að skrá sig í skoðunarferð um bygginguna eða þá að njóta kvöldstundar með því að fara á sýningu.

Riga Motor Museum hefur auk almennrar bifreiðasögu að geyma skemmtilegt safn af bifreiðum sem tilheyrðu ráðamönnum Sovétríkjanna.

Jūrmala "Perla Lettlands", er bær í um 20km fjarlægð frá borginni og þar er að finna eina fallegustu strönd Lettlands við Eystrasaltið. Í Jurmala er úrval frábærra heilsulinda og SPA hótela sem henta öllum þeim sem vilja láta dekra við sig. Í Jurmala er einnig Livu Aquapark sem býður m.a. upp á rennibrautir, sundlaugar, gufuböð og í garðinum er einnig að finna veitingastað og bar.