Í þessari spennandi ferð til Albaníu munum við kynnast ríkri menningu og stórbrotinni sögu landsins. Heimamenn leggja áherslu á að gestir upplifi allt hið besta sem land og þjóð hefur upp á að bjóða. Í Albaníu er óspillt náttúra hvert sem litið er - tilkomumikil fjöll, fallegar strendur, heillandi vötn, mikið skóglendi og fjölbreytt dýralíf. Þessi ferð er svo sannarlega ævintýraleg og óvenjuleg upplifun!
Verð
- Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 541.500kr.
- Verð fyrir eins manns herbergi 580.500kr.
Hvað er innifalið?
- Allt flug samkvæmt ferðaáætlun ásamt sköttum og gjöldum.
- Allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt ferðaáætlun.
- Allar skoðunarferðir í ferðaáætlun og aðgangur þar sem við á með 1 vatnsflösku á mann.
- 3-4★ hótel með morgunmat | Hálft fæði.
- 3 nætur í Riga á 4★ hóteli með morgunmat.
- Íslenskur fararstjóri frá Íslandi.
- Innlendur enskumælandi fararstjóri í Albaníu.