Töfraeyjan Sri Lanka | Göngu & Yoga ferð Nóvember 2025

Töfraeyjan Sri Lanka | Göngu & Yoga ferð Nóvember 2025

Trans- Atlantic og Gönguferðir Grétu bjóða uppá einstaka ferð til töfraeyjunnar Sri Lanka sem á engan sinn líka! Hér kemur saman gullfalleg náttúra, heillandi menning og framandi dýralíf sem gera þessa spennandi yoga- og gönguferð að einstakri upplifun sem ekki má missa af. 

Ferðatímabil er 17. Nóvember til 29. Nóvember 2025

Takmarkaður fjöldi sæta í boði !

Verð

  • Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 671.800 kr.
  • Verð fyrir eins manns herbergi 777.600 kr.

Hvað er innifalið?

  • Flug með sköttum og tösku
  • Íslenskur yoga kennari, fararstjóri og göngufararstjóri
  • Innlendur enskumælandi fararstjóri allan tímann í Sri Lanka
  • Öll gisting með morgunmat
  • Hálft fæði | Morgunmatur og kvöldmatur
  • Allur flutningur | Allar ferðir
  • Vatn í ferðum
  • Aðgangur þar sem við á
  • Yoga tímar með kennara
  • Tími með innlendum kennara í yoga stöð í Colombo
  • Visa per mann 20$ | Það er gert í gegnum netið og við aðstoðum með það.

Fararstjóri

Gréta S. Guðjónsdóttir er lærður og starfandi leiðsögumaður og ljósmyndari. Hún hefur verið að leiðsegja síðan hún flutti heim til Íslands árið 1996, frá Hollandi. Fyrstu árin eingöngu með prívat ljósmyndaferðir en eftir að hafa náð sér í réttindi Leiðsögumanns árið 2011, um allt Ísland og allan heim, t.d. Kúbu, Marrakesh og Grænland. Hún hefur lengst af unnið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, Ferðafélagi Íslands, Atlantik, Úrval Útsýn, og nú síðast með Gönguferðir Grétu. Gréta er með WFR (skyndihjálp í óbyggðum) og meiraprófið.

 

 

Ferðaáætlun

Hér er að finna nákvæma ferðaáætlun þar sem farið er yfir hvern dag. 

Lesa meira