Að koma til Marokkó er sannkallað ævintýri og að ferðast um landið á jeppa er engu líkt! Í þessari ferð er keyrt upp í Atlas fjöll, inn í Sahara eyðimörkina og gist þar, fornar borgir heimsóttar með sínum mörkuðum, höllum, moskum og kynnumst heimamönnum.
Verð
Heildarfjöldi þátttakenda 1 | Eitt einstaklingsherbergi
- Verð per einstakling 475.300kr.
Heildarfjöldi þátttakenda 2 | Eitt tveggja manna herbergi
- Verð per einstakling 384.300kr.
Heildarfjöldi þátttakenda 3 | Eitt tveggja manna herbergi / Eitt einstaklingsherbergi
- Verð per einstakling 375.300kr.
Heildarfjöldi þátttakenda 4 | Tvö tveggja manna herbergi
- Verð per einstakling 359.200kr.
Hvað er innifalið?
- Flug með sköttum og tösku.
- Gisting með morgunmat.
- Kvöldmatur | Hálft fæði.
- Úlfaldaferð í Sahara eyðimörkinni.
- Sandbretti á sandöldum Sahara.
- Öll keyrsla í Marokkó í Toyota Landcruiser.
- Enskumælandi bílstjóri/leiðsögumaður sem keyrir jeppann.
- Gistinótt í tjöldum Bedúína í eyðimörkinni.