Töfraeyjan Sri Lanka | Göngu & Yoga ferð

Töfraeyjan Sri Lanka | Göngu & Yoga ferð

Trans- Atlantic og Gönguferðir Grétu bjóða uppá einstaka ferð til töfraeyjunnar Sri Lanka sem á engan sinn líka! Hér kemur saman gullfalleg náttúra, heillandi menning og framandi dýralíf sem gera þessa spennandi yoga- og gönguferð að einstakri upplifun sem ekki má missa af. 

Verð

  • Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 699.300kr.
  • Verð fyrir eins manns herbergi 802.900kr.

Hvað er innifalið?

  • Flug með sköttum og tösku
  • Íslenskur yoga kennari, fararstjóri og göngufararstjóri
  • Innlendur enskumælandi fararstjóri allan tímann í Sri Lanka
  • Öll gisting með morgunmat
  • Hálft fæði | Morgunmatur og kvöldmatur
  • Allur flutningur | Allar ferðir
  • Vatn í ferðum
  • Aðgangur þar sem við á
  • Yoga tímar með kennara
  • Tími með innlendum kennara í yoga stöð í Colombo
  • Visa per mann 20$ | Það er gert í gegnum netið og við aðstoðum með það.

Fararstjórar 

Gréta S. Guðjónsdóttir er lærður og starfandi leiðsögumaður og ljósmyndari. Hún hefur verið að leiðsegja síðan hún flutti heim til Íslands árið 1996, frá Hollandi. Fyrstu árin eingöngu með prívat ljósmyndaferðir en eftir að hafa náð sér í réttindi Leiðsögumanns árið 2011, um allt Ísland og allan heim, t.d. Kúbu, Marrakesh og Grænland. Hún hefur lengst af unnið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, Ferðafélagi Íslands, Atlantik, Úrval Útsýn, og nú síðast með Gönguferðir Grétu. Gréta er með WFR (skyndihjálp í óbyggðum) og meiraprófið.


Auður Bjarnadóttir - Stofnandi/ eigandi Jógasetursins.  Auður hefur kennt jóga síðan árið 2000. Hún á að baki ýmis kennaranám í Hatha - Kundalini - Meðgöngujóga - Yoga Nidra og Yoga Therapíu - Diploma í Dáleiðslu - Doulu nám og HypnoBirth. Auður hefur kennt víða og haldið utan um ýmis námskeið í Jógasetrinu, ma. Kennarnám í Jóga og fleiri fjölbreytt námskeið. Auður elskar að kenna en líka að læra og lítur á sig sem eilífan nemanda í jóga, og að lifa lífinu lifandi. Auður hefur einnig leitt jógaferðir á fjöllum og síðustu ár hefur hún einnig kennt íslenskum og erlendum hópum á Krít, Corfu, Amorgos og á Ítalíu. Hún elskar að ferðast og tengja jógað og ferðalög.

 

 

Ferðaáætlun

Hér er að finna nákvæma ferðaáætlun þar sem farið er yfir hvern dag. 

Lesa meira