Páskaferð | Egyptaland

Páskaferð | Egyptaland

Spennandi páskaferð til borgarinnar Hurghada við Rauðahaf í beinu flugi - kristaltær sjór og heillandi sandstrendur þar sem hægt er að fara í siglingu, fara á seglbretti, snorkla, kafa og margt fleira. Kóralrifin undan ströndum Hurghada eru einstaklega falleg, eyjarnar í kring fjölbreyttar og framandi og mikið úrval af spennandi skoðunarferðum í boði fyrir þá sem vilja meira en að flatmaga á ströndinni í sólinni. Mikið úrval verslana, veitingastaða og skemmtistaða af öllu tagi auk vatna- og skemmtigarða skammt frá. Hurghada hefur eitthvað fyrir alla!

Verð

  • Hilton Hurghada Plaza | Nútímalegt 4★ hótel við ströndina.
  • Verð fyrir einstaklingsherbergi 423.900kr.
  • Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 326.500kr.
  • Verð per einstakling í þriggja manna herbergi 310.950kr.

→ Rúm + svefnsófi í herbergi.

 

  • Börn [1 - 12 ára] | 214.900kr.

 

Hvað er innifalið?

  • Flug með sköttum og tösku.
  • Rúta frá flugvelli.
  • 4★ hótel við ströndina [Hilton Hurghada Plaza].
  • Morgun-, hádegis- og kvöldverðir.
  • Sódavatn/gosdrykkir.
Skoðunarferðir í boði

Spennandi og skemmtilegar skoðunarferðir og upplifanir.

Lesa meira